ASSITEJ Manifesto
Stefnuyfirlýsing ASSITEJ International um rétt barna og ungmenna til lista og menningar.
ASSITEJ Manifesto er stefnuyfirlýsing alþjóðasamtakanna ASSITEJ um rétt barna og ungmenna til lista og menningar. ASSITEJ á Íslandi er aðili að samtökunum og stendur að baki yfirlýsingunni.
Hvaðan kemur yfirlýsingin?
Hún varð til í kjölfar Coffee Sessions, samtalsfunda sem ASSITEJ International stóð fyrir á meðan heimsfaraldurinn gekk yfir. Þar lýstu hundruð sviðslistafólks víða að úr heiminum stöðu sinni og því neyðarástandi sem skapaðist í greininni.
Yfirlýsingin leggur áherslu á jafnt og réttlátt aðgengi barna að listum og menningu, og á rétt þeirra til að alast upp í heilbrigðum og sjálfbærum heimi. Hún er hugsuð bæði sem verkfæri fyrir sviðslistafólk og sem þrýstingur á þau sem taka ákvarðanir um menningarmál.
Lesa yfirlýsinguna
ASSITEJ International gefur yfirlýsinguna út og hvetur aðildarfélög og sviðslistafólk til að dreifa henni, kynna hana fyrir almenningi og leggja hana fyrir stjórnvöld og aðra sem ráða för í menningarmálum.
Yfirlýsinguna má lesa í heild og sækja sem PDF á vef alþjóðasamtakanna: Manifesto — ASSITEJ International
