Samtökin beita sér fyrir samstarfi og samskiptum sviðslistafólks og leikhúsa innanlands sem utan og stuðla þannig að listrænni þróun barnaleikhúss.

Samtökin hafa verið starfrækt allt frá árinu 1990 og hafa haft það að markmiði að standa vörð um leikhús fyrir börn með því m.a. að efla samskipti sviðslistafólks sem starfar á þessum vettvangi á Íslandi og hvetja það til alþjóðlegs samstarfs.

Íslandsdeild samtakanna hefur m.a. staðið fyrir alþjóðlegum vinnustofum, tekið þátt í norrænu samstarfi, sent fulltrúa á námskeið og vinnustofur og hefur haft milligöngu um val á íslenskum sýningum á erlendar sviðslistahátíðir.

UNGI sviðslistahátíð

Kjarni starfseminnar hérlendis frá árinu 2013 hefur verið UNGI, alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir börn sem er haldin annað hvert ár. Hátíðin er sjálfstæð en haldin samhliða og í góðu samstarfi við Barnamenningarhátíð í Reykjavík. Hátíðin hefur markað sér sess í menningarlífi borgarinnar.