UNGI sviðslistahátíð
Alþjóðleg sviðslistahátíð fyrir börn, haldin í Reykjavík annað hvert ár. Dagskráin og allt um hátíðina er á vef hennar.

UNGI sviðslistahátíð ASSITEJ hefur verið haldin í Reykjavík frá árinu 2013. Á hátíðinni er boðið upp á innlendar og erlendar leiksýningar fyrir börn og ungmenni auk fjölda smærri viðburða. Hátíðin er haldin að vori í tengslum við Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
Árið 2016 var ákveðið að hátíðin yrði tvíæringur. Hátíðin er styrkt af Reykjavíkurborg.
Dagskráin
Dagskrá hátíðarinnar — bæði þeirrar sem er framundan og þeirra sem liðnar eru — er á vef UNGA. Þar er hver hátíð með sína eigin síðu og sitt eigið útlit, svo eldri dagskrár varðveitast eins og þær voru.
Hafðu samband
Fyrirspurnir um hátíðina má senda á ungi@ungifestival.is.
